12.14.2005
12.07.2005
Það liggur við að eg paste inn sama pistil og í fyrra um að taka ekki þátt í þessari jólageðveiki. Það er eitthvað sem springur í hausnum á sumu fólki og það hefur allt á hornum sér á þessum tíma árs. Fólk er hætt að njóta.
12.06.2005
Grímsey
Vá hvað ég er heillluð af þessum stað á hjara veraldar. Komum í rellu sem fékk hjartað til að slá og lentum á klakanum hér. Klukkan var um hálf tvö en samt var dimmt og varð bara svartara eftir það. Hófst handa að sjálfsögðu. Það var skítkalt og gott.. rauðar kynnar eins og skot . Þar sem það voru nokkur hús sem voru ekki á kortinu mínu þá varð eg að mæla þau frá grunni.. þvi nóg að gera þrátt fyrir lítin stað.
Þegar eg labbaði mér heim á leið var farið að snjóa eða réttara sagt farið að ísa. þetta var hvorki snjókoma né rigning.. bara frost. Ég sá að það var verið að landa úr trillum og stærri bátum. Það er ekki annað hægt en að dást að þessum mönnum. Þvílíkir íslenskir harðjaxlar. Bunir að vera út á sjó allan daginn í þessum kulda og vera svo að landa þarna í ísingunni.. gat ekki annað en fylgst með.
Eftir hátíðarkvöldverð að hætti Grímskjara – nauðsynjavörur á norðurhjara! ákváðum við að fara í göngutúr og skoða okkur um í myrkrinu. Sögðum draugasögur og löbbuðum út á syðsta oddann. Án þess að vita af þvi þá labbaði eg fram hjá mylluni frægu..myrkrið var svo mikið.. eina sem við sáum var það sem vitin lísti upp og bjarman frá þéttbylinu á landinu. Það var rok og brim og mér fannst þetta svo magnað að sjá þetta í kastaranum frá vitanum. Ekta upplifun á magaðari nátturu... heillaðist eins og skot.
Það var einnig svo þægileg tilfining að vera langt í burtu frá öllu og hleipir imyndunaraflinu á flug. Veit vel að eg gæti ekki búið þarna en eg gæti orðið tíður gestur.
Seinna kvöldið fréttum við að það væri bingó í skólanum.. og að sjálfsögðu fór ég! Keypti mér spjald hjá kiwanis klubbnum og bjór hjá kvennfélaginu. Vann ekkert.. svekkjelsi en þetta var rosa gaman.





